Jabra SPEAK2 55 UC fundahátalari BT

2755-209

Jabra Speak2 55 er sveigjanlegur fundarsími fyrir fagleg símtöl hvar sem þú vinnur. Hann sameinar öflugt hljóð, háþróaða hljóðnema og einfalda tengingu fyrir hnökralausa fundi.

24.382 kr

m/VSK

4 eftir

Eiginleikar

Gerð tækisAlhliða
ViðmótUSB Type-C
TengitækniMeð snúru og þráðlaust
LiturSvartur

Vörulýsing

Speak2 55 gerir auðvelt að breyta skrifborðinu, heimaskrifstofunni eða öðrum vinnustað í fundarrými. Full duplex audio gerir þátttakendum kleift að tala og heyrast á sama tíma, sem skilar eðlilegri samtölum og minni truflunum.

Fjórir beamforming hljóðnemar með öflugri noise cancellation nema raddir úr öllum áttum og draga úr óæskilegu bakgrunnshljóði. Voice Level Normalization jafnar raddstyrk þátttakenda sjálfkrafa, þannig að enginn þarf að hækka röddina eða stilla hljóðið stöðugt.

Full-range 50mm hátalari með wideband audio skilar skýru og fylltu hljóði yfir breitt tíðnisvið. Speak2 55 er vottaður fyrir helstu fjarfundakerfi, þar á meðal Microsoft Teams, og virkar með Zoom, Google Meet og öðrum leiðandi lausnum.

Tækið er nett, endingargott og hannað fyrir blandað vinnuumhverfi. Það er með IP64-vörn gegn ryki og vatni, fylgir með hlífðarpoki og rafhlaðan endist í allt að 12 klukkustundir í þráðlausri notkun.

Tenging er einföld með plug-and-play virkni. USB-A og USB-C tengi eru á sama snúru, svo ekki þarf að leita að millistykki. Hægt er að halda tækinu uppfærðu með Jabra Direct og Jabra Xpress.

Ytra byrði Speak2 55 er framleitt úr yfir 50% sjálfbærum efnum og nokkrir innbyggðir hlutar eru hannaðir þannig að hægt sé að gera við þá eða skipta þeim út. Það stuðlar að lengri endingartíma og ábyrgari notkun.