
Jabra Evolve3 65 Flex MS stereo USB-C þráðlaust heyrnartól án hleðslustands
36699-999-899
Jabra Evolve3 65 Flex er létt, samanbrjótanlegt þráðlaust headset fyrir vinnu á ferðinni. Það sameinar skýrt hljóð, þægilega notkun og snjalla hljóðeinangrun í fyrirferðarlítilli hönnun.
m/VSK
Þessi vara er ekki til á lager — hafðu samband til að spyrjast fyrir.
Eiginleikar
| Vörutegund | Höfuðtól |
| Notkunarstíll | Höfuðspöng |
| Ráðlögð notkun | Skrifstofa/símaver |
| Gerð höfuðtóls | Tvíeyrna |
| Tengitækni | Þráðlaust |
| Gerð hljóðnema | Innbyggt |
Vörulýsing
Headsetið er hannað fyrir sveigjanlegt vinnuumhverfi og passar auðveldlega í meðfylgjandi burðarpoka eða mjóa fartölvutösku. Hönnunin er án mic arm og því nettari, en skilar samt skýrri raddmiðlun með Jabra ClearVoice og AI-tækni sem aðgreinir röddina frá umhverfishljóði.
Adaptive ANC með 4 hljóðnemum aðlagar hljóðdeyfingu að aðstæðum og notkun í rauntíma, einnig í símtölum. 360° Busylight sýnir öðrum að þú sért upptekin(n) og hjálpar til við að draga úr truflunum.
Jabra Air Comfort og skásettir, sporöskjulaga eyrnapúðar gera headsetið þægilegt í langri notkun, hvort sem þú ert á skrifstofunni eða á ferðinni. Spatial Sound gefur náttúrulegri upplifun í samtölum, á meðan 28 mm hátalarar og LC3 codec styðja við skýrt hljóð fyrir tónlist og einbeitingu.
Með Jabra Plus er hægt að stilla hljóð eftir þörfum, uppfæra tæki og auðvelda fjarumsjón fyrir IT-teymi. Bluetooth Low Energy (LE) og enterprise-grade security styðja örugga og skilvirka notkun.
Rafhlaðan endist í allt að 16 klukkustundir í tali eða 80 klukkustundir í tónlistarspilun á einni hleðslu. Fast Charge gefur allt að 4 klukkustundir af tónlist eftir aðeins 10 mínútna hleðslu.
Evolve3 65 Flex er vottað fyrir Microsoft Teams, Google Meet og Zoom. Rafhlaðan er útskiptanleg, eyrnapúðar eru auðveldir í skiptum og varan inniheldur 37% endurunnið eða biocircular efni miðað við þyngd, auk þess sem hún kemur í FSC-vottuðum umbúðum.