POLY TC10 - 10" funda- og bókunarskjár (Hvítur rammi)

875J5AA#AC3

Poly TC10 snertistjórnborðið einfaldar fundi, bókanir og aðgang að fundarýmum. Það hentar vel fyrir ráðstefnuherbergi og sameiginleg vinnurými þar sem skýr yfirsýn og einföld stjórnun skipta máli.

154.639 kr

m/VSK

1 eftir

Eiginleikar

Litur vöruHvítur
LiturSvartur

Vörulýsing

Zoom Certified bókunarspjaldið gerir auðvelt að sjá stöðu fundarýma og bóka þau á örfáum sekúndum. Fjöllita LED-lýsing sýnir hvort rýmið er laust áður en komið er að dyrunum, og snertiskjárinn gerir notendum kleift að skipuleggja næsta fund á einfaldan hátt.

Stjórn á myndfundum er aðgengileg beint af stjórnborðinu, með greiðum aðgangi að helstu cloud video apps í myndfundakerfi herbergisins. Hægt er að stjórna símtölum og deila efni með einni snertingu.

Uppsetningin er snyrtileg og sveigjanleg. Hægt er að festa stjórnborðið á vegg eða gler, eða setja það á borð með stillanlegum standi. Einn kapall sér um bæði rafmagn og tengingu, sem heldur uppsetningunni einfaldri og faglegri.