HP TB4 Ultra 280W G6 Dokka

AW5M5UT

HP Thunderbolt 4 Ultra 280W G6 Dock er öflug tengikví fyrir hraðvirkt og öruggt vinnuflæði. Hún sér um tengingar, hleðslu og stjórnun tækja á einfaldan hátt.

77.200 kr

m/VSK

Til á lager

Eiginleikar

Litur vöruGrár
LiturSilfur

Vörulýsing

Tengdu vinnuaðstöðuna hratt og áreiðanlega með HP Quick Connect, sem vekur tækin áður en þú sest við borðið. Með allt að 280W aflgjöf og 40 Gbps gagnaflutningi í gegnum Thunderbolt 4 færðu kraftinn og hraðann sem þarf fyrir krefjandi daglega notkun.

Poly Lens gerir kleift að stjórna tengikvínni úr skýinu án þess að vera á staðnum. Kerfisstjórar geta sett inn sjálfvirkar firmware uppfærslur, fylgst með mæligögnum og greiningum og þannig stutt notendur og nýtt vinnurými betur.

HP Wolf Security sameinar HP Sure Start og Zero Trust Framework til að vernda tengikvína, tækin og skýjatenginguna frá enda til enda. Hönnunin tekur einnig mið af endingartíma, með slitsterkri byggingu, skiptanlegum hlutum og einingu til að fylgjast með orkunotkun. Umbúðirnar eru án plasts.